|
Fallegasta barn í heimi!!! :)
|
28.10.2007 12:17:12 / vally
Hæhæ! Veit ekki hvort það er einhverjir sem kíkja hingað inn lengur en ef það er einhver þá Surprise! Loksins eitthvað nýtt  Ég var alveg ótrúlega glöð í nótt þegar ég vaknaði til þess að gefa snúllunni minni snuðið sitt. Ég fór og opnaði gluggann, þá var þessi líka flotta snjókoma. Ohhh I LOVE IT! Ég vona svo heitt að snjórinn fari ekki strax. Ég komst bara í þvílíkt jólaskap, ég sem er búin að vera að reyna að halda í mér til nóvember hehe enda þekkt fyrir að byrja að föndra í september. Jólin eru bara svo yndislegur tími og mikið hlakka ég til að halda jólin heima hjá okkur. Við erum búin að bjóða foreldrum mínum og systkinum í mat á aðfangadag og okkur hlakkar alveg ofboðslega til. ....Ég ver bara svo mikið jólabarn! Ég hlakka svo til að upplifa jólin með Særúnu Lilju minni. Hlakka svo til að sjá hvernig hún verður þegar hún sér öll ljósin og jólatréð og opnar pakkana. Ohh bara yndislegir tímar framundan.  En af okkur litlu fjölskyldunni er allt gott að frétta. Særún Lilja dafnar ekkert smá vel. Hún er algjör orkubolti og alveg rosalega skemmtileg stelpa. Hún heillar alla uppúr skónum. Við keyptum prinsessubíl handa henni í síðustu viku og hún er ekkert lítið montin með hann. Hún er farin að hlaupa með hann bara sætust sko. Hún fer samt varlega, heldur í stýrið og haldfangið og er með bílinn þvert fyrir framan sig og brunar af stað. Hún er svo dugleg, hún labbar allstaðar meðfram og stendur allstaðar upp við. Hún klappar saman lófunum og það heyrist svaka smellur, vínkar bless, sýnir hvað hún er stór og sterk. Bara flottust þessi elska. Við hjúin erum búin að vera saman í 5 ár 2. nóvember og ætlum því að skella okkur út að borða í tilefni þess. Ætlum líka í leikhús eða bíó á eftir. Mamma ætlar að vera hjá prinsessunni á meðan. Við höfum ekkert farið saman út eftir að hún fæddist svo það verður eitthvað skrýtið en ábyggilega rosa gaman.  Vitiði ég er bara komin í brjálað jólaskap, er búin að vera þvílíkt dugleg að halda í mér en núna þegar það er svona fallegur snjór úti þá er ekki hægt að halda í sér lengur. Langar helst að opna kassana með jólaskrautinu í hahaha  En hvað segiði, eru þið ekki í stuði? ...jólastuði?? 
»
18.04.2007 16:05:35 / vally
Jæja þá hef ég loksins tíma til að drita niður nokkrum línum.
Við litla fjölskyldan erum loksins flutt í fallega húsið okkar. Við
fluttum 17. mars og okkur líður alveg ótrúlega vel hérna í kotinu
okkar. Það er alveg eilífðar verkefni að taka uppúr kössum, við
eigum alveg ótrúlega mikið af dóti og drasli. Samt hentum við
helling af dóti þegar við fluttum úr Silfurtúninu til pabba. Við
höfðum það alveg ótrúlega gott heima hjá pabba en það er rosalega
gott að vera komin í sitt eigið aftur. Ég er ennþá að reyna að
finna taktinn heheh mér finnst ég ekki hafa nógu mikinn tíma til að
gera allt. Mér finnst alveg nóg að stússast í þessu venjulega s.s.
setja í þvottavélina og uppþvottavélina og ganga frá, moppa yfir ,
þurrka af og auðvita hugsa um yndislegu dóttur mína. Þess vegna
situr allt hitt á hakanum s.s taka restina uppúr kössum, hengja upp
myndir og fleira í þeim dúr.
Talandi um að moppa yfir. Ó my gad!!! Hvaðan kemur allt þetta
ryk? Ég get svo svarið það, það er endalaust. Áður en við fluttum
inn þá var sko þvílík vel þrifið, allir veggir voru rykmoppaðir og
skúrað fram og til baka. Ef ég sleppi því að moppa yfir einn dag er
eins og ég hafi ekki þrifið í 3 vikur. Ég er ekki að grínast, ég
var búin að heyra að það væri mikið ryk í nýjum húsum en ég gat
aldrei ímyndað mér að það væri svona svakalegt.
En mig langar að tala um það sem mér þykir kærast!! Það er
auðvita hún Særún Lilja. Hún er algjör snillingur þessi elska. Þann
14. apríl þá tók hún uppá því að velta sér á magann og aftur á
bakið. Aðeins 3,5 mánaða gömul. Við foreldrarnir erum að springa úr
monnti. Hún var bara að leika sér á leikteppinu sínu svo allt í
einu var hún komin á magann og er að skoða sig í speglinu, ekkert
smá sæt. Svo samkjaftar hún alveg við mann. Það er svona mánuður
síðan hún uppgötvaði að hún gæti talað hátt og henni finnst það sko
ekki leiðinlegt. Hún fer létt með það að yfirgnæfa sjónvarpið, bara
sætust!!! 
Við erum byrjuð með hana í ungbarnasundi, erum búin að fara í 2
tíma. Hún er alveg rosalega dugleg, við byrjum bara rólega. En núna
getum við bara gleymt því að baða hana í balanum hennar. Hún fór í
fyrsta skipti í stóra baðið í gær. Hún fékk að fara með mér í bað.
Það var alveg æðislegt hún buslaði ekkert smá mikið. Steini var að
taka myndir og hann varð alveg rennandi blautur hehe. Það var svo
mikill kraftur í henni að það fór vatn uppfyrir skrautflísarnar
inná baði. Við vorum alveg í 40 mín í baðinu og henni var sko ekki
farið að leiðast. Ég hafði baðið um 38° og henni leið rosa vel
í því, henni verður nefnilega alltaf skítkalt í ungbarnasundinu, er
viss um að laugin sé ekki heitari en 36°, hún er allavega farin að
skjálfa eftir 30 mín í sundinu greyjið litla.
Annars er nú ekki mikið að frétta sko. Er búin að setja inn
fullt af myndum inná síðuna hennar Særúnar Lilju.
En já ætla bara að hafa þetta gott í bili. 
»
20.02.2007 00:52:23 / vally
Góðan daginn kæru vinir. (veit þið lesið þetta á morgun)
Ég hef nú ekki verið alveg sú duglegasta að blogga því
móðurhlutverkið er í fyrsta sæti. Þetta er ekkert smá skemmtilegt
hlutverk að vera mamma. Ég á svo dásamlega dóttur sem var skírð á
laugardaginn og fékk hún nafnið Særún Lilja.
Særún Lilja varð 7 vikna í gær og er alveg ótrúlega dugleg og
falleg stelpa. Hún byrjaði strax að halda höfðinu og er alltaf að
æfa sig og getur nú alveg haldið höfðinu í nokkrar mínútur í einu.
Hún er einnig farin að brosa og það er bara sætast í öllum
heiminum. Svo er hún líka farin að hjala og talar og talar við
mann, bara krútt. Ég er alveg ótrúlega stolt af henni enda ekki
annað hægt!
Skírnardagurinn gekk eins og í sögu og var alveg dásamlegur í
alla staði. Prinsessan svaf til kl. 10 um morguninn og fékk þá að
drekka. Svo fórum við Steini í Keflavík í bókabúðina að kaupa
gestabók, í blómaval að ná í blómaskreytinguna og svo í bakaríið að
sækja skírnartertuna og snittubrauð. Prinsessan var hjá afa sínum
og Írisi frænku á meðan. Svo fór ég í sturtu og svo böðuðum við
litlu prinsessuna okkar. Svo fékk hún aftur að drekka kl. 13 og var
alveg að drekka til kl. 13:35 þá varð ég soldið stressuð. Ég átti
eftir að klæða hana og klæða mig og mála mig og skírnin byrjaði kl.
14. Ég á svo elskulega systur sem var svo væn að slétta á mér hárið
á meðan ég var að gefa Særúnu Lilju að drekka. Sem betur fer var
mamma mætt á svæðið og klæddi Særúnu Lilju í skírnarkjólinn. Svo
þetta reddaðist alveg og við mættum á réttum tíma. Steini gerði
allt hitt tilbúið á meðan. Athöfnin fór mjög vel fram og Særún
Lilja var alveg ótrúlega góð, heyrðist ekkert í henni, hún lagði
sig bara. Allir gestirnir stóðu í krinugum okkur sem gerði athöfina
miklu skemmtilegri. Steini hélt á Særúnu Lilju og honum varð alveg
rosalega heitt. Hann er mjög heitfengur og ég algjör kuldaskræfa og
mér leið vel, þannig að þið getið ímyndað ykkur hvað það
var heitt. Það var alveg farið að leka af honum greyjinu, en
það er bara gaman af því. Presturinn sagðist sko alveg kannast við
þetta sjálfur hehehe. Mamma og Áslaug systir hans Steina voru
skírnarvottar.
Veislan var svo strax á eftir skírnina. Ég er alveg ótrúlega
ánægð með veisluna. Salurinn var alveg æðislega flottur, Karen
frænka hjálpaði okkur að raða borðunum og skreyta. Hún er sko
algjör snillingur í þessu skal ég ykkur segja. Svo voru
veitingarnar mjög góðar þótt ég segi sjálf frá. Ég gerði eina
tegund af brauðrétt 3 stk. Dóra frænka gerði 2 stk draumatertu og
daim-ræs krispís tertu. Lóa mamma hans Steina gerði 2stk
brauðtertur. Mamma gerði 3 stk heitan rétt, heitan rétt með ís,
súkkulaðiköku 2 stk, ræs krispís kökur, muffins,
Kókos-jarðaberjatertu 2 stk. Svo keyptum við skírnarkökuna og
snittubrauð og pestó. ÞAð var rosalega góðmennt og allir í góðu
skapi. Það komu held ég 66 gestir í veisluna. Særún Lilja var
vakandi eiginlega allan tímann í veislunni, ætlaði sko ekki að sofa
af sér partýið. Hún var alveg æðisleg, leyfði öllum að halda á
sér og já bara yndislegust. Svo var veðrið úti alveg frábært sem
toppaði allt saman.
Særún Lilja fékk alveg helling af fallegum gjöfum. Ég vil þakka
ykkur sem komu í skírnina alveg innilega fyrir stelpuna og fyrir
skemmtilegan dag! 
Ég er búin að setja inn fullt af myndum á síðuna hennar Særúnar
Lilju, endilega kíkið á þær. Ég ætlaði að láta nokkrar myndir
fylgja með en ég kann ekkert á þetta.
Jæja ég ætla að skella mér í háttinn svo ég vakni í fyrramálið.
Það eru nefnilega mömmumorgnar og þeir byrja kl. 10-12. Góða
nótt
P.s endilega skrifa í komment!
»
14.01.2007 17:18:41 / vally
Það gengur mjög vel hjá okkur. Snúllan er
búin að vera rosalega góð, sefur vel á nóttunni og er mjög
vær. Hún var reyndar mjög ergileg um daginn og við höfðum smá
áhyggjur af henni og hringdum því í mömmu/ömmuna og hún
bjargaði málunum. Snúllan var búin að drekka soldið mikið
yfir sig (skil ekki hvaðan hún fær þessa græðgi í mat) og hún
var alveg útþanin greyjið litla. Amman kom og bjargaði
málunum, dúllaðist með hana og svo sofnaði snúllan hjá henni.
Hún náði svo að losa sig við þessi ósköp og ég gaf henni
ekkert fyrir svefnin. Þurfti líka að labba um gólf með hana í
nokkrar mínútur til að svæfa hana. Svo vaknaði hún eldsnemma
og var búin að losa sig við meira. Greyjið litla, platar
soldið mömmu sína. Hún er með svo mikla sogþörf og drekkur
meira en hún þarf. Ég er nú samt búin að læra á hana núna.
Málið er að stundum vill hún bara alls ekki snudduna og
grettir sig eins og maður sé að bjóða henni einhvern viðbjóð
hahaha bara krútt!! En hún er búin að vera eins og engill
síðan, bara yndislegust! 
Ég er búin að eyða hellings tíma í að búa til
barnalandssíðu fyrir litlu snúlluna. Hún er loksins orðin tilbúin
og komnar inn fullt fullt af sætum myndum. Á samt ennþá eftir að
setja inn nokkrar. Við erum búin að vera svo ótrúlega dugleg að
taka myndir af fallega barninu okkar. Hún er bara svo æðisleg!
Síðan er læst og ef þið viljið aðgang þá verðiði bara að senda
okkur e-mail og þið fáið leyniorðið. Slóðin á síðuna er
http://www.barnaland.is/barn/55926
Vááá ég veit ekki hvort ég þori að segja ykkur
þetta en ég ætla að láta vaða. Ég er bara búin að fara út einu
sinni á þessu ári. Já og það var út af sjúkrahúsinu og inn í bíl og
svo út úr bílnum og inn heim. Mætti halda að áramótaheitið mitt
hefði verið að fara ekki útúr húsi hahaha. Ég verð samt að fara að
fara út, þetta gengur ekki. Fara í göngutúr eða útí búð eða
eitthvað.
En ég ætla ekki að hafa þetta neitt lengra í
bili. Endilega kvittið í komment!
Kiss Kiss :*
»
10.01.2007 00:32:46 / vally
Lífið er yndislegt! Eins og
þið flest vitið þá eignuðumst við alveg yndislega litla
fallega prinsessu á nýárs morgun. Fæðingin gekk alveg eins og
í lygasögu og heilsast okkur öllum rosalega vel.
Gamlárskvöld fór alveg eins og ég
ætlaði að hafa það. Borðuðum kjúkling, löbbuðum á brennuna, horfðum
á skaupið, skutum upp flugeldum og svo lögðum við af stað á
fæðingardeildina kl. 00:35. Prinsessan var svo fædd kl 03:54. Hún
var 13 merkur og 51 cm. Hún er með soldið mikið dökk brúnt hár og
dökk grá augu. Hún er algjör gullmoli og erum við alveg ótrúlega
ánægð með hana. Ég get varla haft augun af henni, þess vegna hef ég
ekki tímt að fara í tölvuna og blogga.
Við vorum að reyna að búa til
barnalandssíðu fyrir hana, en hún er ekki tilbúin. Það eru engar
myndir komnar inn. Ég læt ykkur vita um leið og hún er tilbúin. Við
erum alveg búin að vera ofvirk á myndavélinni, enda ekki annað hægt
en að mynda svona fallegt barn. 
Ég vil þakka ykkur öllum kærlega
fyrir allar kveðjurnar, ekkert smá gaman að fá svona mörg comment
og sms og ég tala nú ekki um símhringingarnar og heimsóknirnar.
Við erum alveg í skýjunum og ég efast um að við komum þaðan niður.
Hehehe Litla snúllan er bara svo mikið æði.
Ég ætla ekki að hafa þetta neitt
lengra í bili.
Endilega haldið áfram að
commenta. Hef tekið eftir aukinni aðsókn á síðuna mína svo nú
verðiði að standa ykkur í commentunum.
Kærleikskveðjur Vallý sem er
loksins orðin mamma. 
»
31.12.2006 12:46:22 / vally
Jæja núna er síðasti dagur ársins gengin í garð. Úff hvað þetta
er fljótt að líða.
Litla barnið okkar er ekki komið í heiminn ennþá. Er
gengin 40 vikur og 4 daga í dag. Við sem héldum að það kæmi fyrr
þarsem það var eitthvað að reyna að drífa sig í heiminn um miðjan
nóvember. En neinei soldið týpíst að ég gangi framyfir svo eftir
allt saman. Ég sagði á afmælisdaginn minn að ég ætlaði að eiga
nýarsbarnið, Váá hvað ég vona að það komi í nótt, ég er ekki að
meika mikið lengri bið sko. Ég er með 3-4 í útvíkkun og mig vantar
bara verki sagði ljósan. Ég er reyndar búin að vera með verki í dag
og í gær en bara alls ekki reglulega. Hef lítið sem ekkert sofið
síðustu tvær nætur svo ég vona svo heitt og innilega að barnið
okkar komi í nótt.
Allir að senda mér almennilega
hríðarstrauma takk fyrir!!!! 
Ég átti alveg yndisleg jól með fjölskyldunni minni. Við borðuðum
rosalega góðan mat og fengum fullt af fallegum gjöfum. Við fengum
líka fullt fullt af jólakortum og 25 stk. með mynd. Ekkert smá
gaman, höfum aldrei fengið svona rosalega mikið af fallegum
jólakortum áður. 
Í kvöld ætlum við að borða kjúkling, mikið hlakka ég til,
ég elska kjúkling. Ég pantaði það, enda fer reyktur matur ekkert
sérlega vel í mig núna. Ég vil bara fá léttan og góðan mat í mallan
minn. Svo verður náttla ostar og vínber og snakk með skaupinu.
Vona svo sannarlega að það sé eitthvað varið í skaupið í ár. Ég sá
að vísu aldrei skaupið í fyrra því við vorum á Kanarý. Við komum
ekki til með að skjóta miklu upp enda er ég skíthrædd við þessar
spreingjur og rakettur. Steini og Jón Bragi fengu sitthvora tertuna
og risa rakettu/tívolíbombu frá vinnunni svo get ég alveg trúað
honum bróður mínum til þess að fara og kaupa sér eitthvað meira en
þetta dugir okkur hinum. Svo ætla ég bara að vona að ég fari á
fæðingardeildina og dvelji þar fyrstu daga ársins með litla barninu
okkar og vonandi má Steini vera hjá okkur.
Ég ætla að hafa þetta gott í bili og endilega kvittið
fyrir komuna.
Áramótaknús!
:*
»
22.12.2006 19:46:57 / vally
Jæja eins og þið flest vitið þá eru bara jólin að skella á. Þorláksmessa á morgun og
svo Aðfangadagur Jóla hinn. Ég
hef hlakkað til þessara jóla
alveg hrikalega lengi. Við fjölskyldan vorum náttla á Kanarý
um seinustu jól. Það var soldið
öðruvísi skal ég ykkur segja. En það var mjög gaman, mjög
skemmtilegt að prufa svona öðruvísi jól í mjög góðu veðri. Við borðuðum
jólamatinn á íslenskum bar sem
heitir Klörubar. Þangað fara allir íslendingar sem fara til
Kanarýeyja, ég held ég geti fullyrt það! Jólamaturinn var nú kannski ekki sá besti,
svínahamborgarahryggurinn var soldið bragðlaus og svo var
sveppasósa með. Hvað er nú það??? Hahaha mér fannst það sko
engan veginn passa saman, ég vil fá sósu úr soðinu, nammi
namm. Svo vantaði líka jólaölið.
Eftir matinn hittum við svo fullt af fólki og sátum lengi á
börunum að kjafta og skemmta okkur. Ég var reyndar búin að
sjá fram á að ég mundi vera búin að eignast litla
kraftaverkið mitt fyrir þessi jólin. En ég er ekki á því núna, ég held að
það komi á settum degi s.s. 27. desember eftir 5 daga. eða
ekki fyrr en á næsta ári. Ég stefni á fyrstabarn ársins
hehehe nei djók, krílið okkar kemur um leið og það er
tilbúið, ég veit það. Held samt að ég þurfi að bíða til næsta
árs, það er alveg ég að fara af stað 34 vikur og ganga svo 2
vikur framyfir. Hehehe en ég vona að ég þurfi nú ekki að bíða
svo lengi.
Við Steini ætlum að vera heima á aðfangadag, heima hjá pabba, Jóni Braga, Írisi og
Skvísu. Borða svínahamborgarahrygg a la pabbi, sem er náttla bara
snilld. Svo ætla ég að búa til marsíssósu til að borða með ísnum í
eftirrétt. Á jóladag þá er mamma svo
með matarboð og við mætum að sjálfsögu þangað. Held það verði
soldið fjölmennt þar, allavega verða afi og langamma með okkur og
svo börnin hans Klemensar býst ég við. Mamma bíður okkur uppá
hangikjöt með öllu tilheyrandi og svo einhver hryllilega góðan
eftirrétt. Hún klikkar ekki á eftirréttunum þessi elska. 
Ég hlakka mjög til að fá allan þennan góða mat, sitja í
faðmi fjölskyldunnar og hafa það gott. Ég er búin að vera hálf
einmanna undanfarið, það er svo mikið að gera hjá öllum. Allir að
vinna þvílíkt mikið, aðrir á seinasta snúningi að undirbúa
jólin. Ég var náttla svo tímanlega í
öllu þetta árið svo ég er bara búin að vera að tjilla. Ég er bara
ekki vön því að hafa svona lítið að gera. Það hefur alltaf verið
kreisí að gera hjá mér á þessum tíma. Ég hef alltaf haft of mikið
að gera, svo þegar maður er að bíða eftir undri veraldar þá líður
tíminn ekkert alltof fljótt. Ég er líka það mikil félagsvera að
ég er alveg ómöguleg ef ég kemst ekki út. Þetta fer að lagast, mér
á ábyggilega aldrei eftir að leiðast þegar krílið mitt fæðist,
alltaf nóg að gera, alveg eins og ég vil hafa það. 
Ég vil óska ykkur öllum Gleðilegra
jóla! Ég vona að þið hafið það gott um
jólin og njótið þess með þeim sem
ykkur þykir vænt um. Það ætla ég allavega að gera. 
*Jólaknús*
Jólakveðja Vallý
»
18.12.2006 12:57:25 / vally
Jibbý ég á
afmæli í dag og er 22ja ára í dag.

Það er nú ekkert planað í dag, Steini er að vinna
til kl. 18. Svo ég er bara ein heima. Ætli ég fari ekki bara útí
búð og kaupi nammi og skelli jólamynd í tækið og bíði eftir
litla kraftaverkinu mínu. Ég hef allavega ekki mikið meira að gera,
þar sem ég er búin að gera flest allt sem tengist jólunum og
barninu. Mig langar bara svo í litla krílið mitt núna. Það yrði
besta afmælisgjöf í heimi. En ég bíð bara eins þolinmóð og ég get.
Kannski vill krílið ekkert koma fyrr en á næsta ári, hver veit! Ég
er samt búin að vera með svo mikla fyrirvaraverki að ég vona að
krílið fari að láta sjá sig.
Allt gott að frétta af húsinu. Eða það gengur
allavega mjög vel miðað við aðstæður. Þannig er mál með vexti að
það var vitlaust dregið (rafmagnið) í húsið, sko útveggina á
húsinu svo það er búið að vera heljarinnar föndur að laga það. Taka
niður fullt af gifsplötum og koma fyrir rörum og svona
skemmtilegheit. En þetta er allt að smella, það er semsagt komnir
upp allir milliveggir og ég held að það sé alveg búið að leggja
rafmagnið og þeir eru nýbyrjaðir að loka milliveggjunum. Svo ætlar
Raggi Halldórs að koma í lok vikunnar og mæla fyrir innréttingum.
Vona að hann láti sjá sig. Svo getur málarinn farið að sparsla sem
fyrst, það á að heilsparsla svo það eru ekki komið upp
loftarþiljurnar. Við erum allavega mjög ánægð með hvernig gengur og
við erum rosalega heppin hvað smiðirnir eru duglegir. Svo kom
rafyrkinn líka strax og já þeir eru bara að standa sig og ég mæli
sko með þeim. Engin svik í gangi þar á bæ. 
En já ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í dag.
Ætla að fara og sturta mig og solleis. Ég verð heima í dag ef
einhverjum leiðist hehehe 
Kiss kiss :*
:*
»
03.12.2006 18:07:54 / vally
Hann á afmæli í
dag
Hann á afmæli í
dag
Hann á afmæli hann
Steini minn
Hann á afmæli í
dag!!!!
Til hamingju með daginn ástin mín! Ég elska þig
mest í heimi!!! :*
Við fórum á föstudaginn í Rvk, kíktum í EGG og
Rúmfatalagerinn. Það er svo gaman að fara þangað. EGG er geggjuð
búð, allt mjög nýtískulegt þar inni en alls ekki dýrt. Bara verðlag
sem eðlilegt fólk hefur ráð á. Svo klikkar rúmfatalagerinn ekki
hehe. En vá við völdum okkur kannski ekki besta dag í heimi.
Föstudagurinn 1.des, úff það var sko mikil traffík. Við vorum í 50
mínútur að komast úr Hafnarfirði í Smárann takk fyrir.
Um kvöldið fórum við út að borða með Halldóru
systur Steina, Hreggviði manninum hennar og Dísu litlu systur
Steina. Við fórum á Madonnu og fengum dýrindis þriggjarétta máltíð.
Namm ég fæ bara vatn í munninn. Við fengum okkur humarsúpu í
forrétt, það er sko uppáhaldið okkar. Svo fékk ég mér lamb og
Steini naut. Í eftirrétt fengum við súkkulaðifrauð með rjóma. Þetta
bragðaðist allt rosa vel. Við skemmtum okkur konunglega og hlóum
eins og asnar. Sumir eru bara rosalega fyndnir! Svo var náttla
dagur rauða nefsins og brandarar í hámarki!!! Hahaha 
Við tókum því svo rólega á laugardeginum. Ég
skellti mér í smá göngu með Skvísu mína. Það er bara yndislegt að
vera úti þegar það er snjór og frost. Loftið er svo tært, ég þurfti
samt að labba mjög hægt þar sem það var svo mikil hálka og ekki á
ég naglaskó. Við skautuðum oft á tíðum hahah bara fyndið. Ég fékk
samt hlaupasting í bumbuna eftir svona 15 mín og það er
brjálæðislega óþæginlegt. Þannig að ég dreif mig heim, eða réttara
sagt sniglaðist heim hahah. Svo um kvöldið var saumó hjá
Hafrúnu. Þar voru engar smá kræsingar, nammi namm. En það er alltaf
gaman að hitta stelpurnar, það vantaði bara Stínu stuð. Það verður
einmitt næsti saumó stílaður inn á hana, semsagt í kringum jólin.
Spurning hvort ég komist í hann, vonandi verð ég komin með krílið
mitt í fangið þá. 
Ég eignaðist lítinn frænda í gær, þann 2. desember.
Hann Snúður Oddsson er kominn í heiminn. Til hamingju Elsku Ásta
og Oddur. :* Hann er algjör gullmoli, með kolsvart hár.
Svo í dag þá rifum við okkur eldsnemma á fætur og
brunuðum í Rvk. Við fórum í Austurberg að horfa á Víðisstrákana
keppa á Íslandsmótinu innanhús. Þetta voru 3 leikir og þeir unnu þá
alla. Unnu sem sagt riðilinn, til hamingju með það strákar.
Svo komum við heim og ég var svo rosalega þreytt að
ég fór uppí rúm að kúra.Við ætlum bara að hafa það kósý í kvöld,
Steini er að fara að vinna eldsnemma á morgun.
Hafið það gott elskurnar mínar! Kiss kiss :*
...endilega skrifið í komment, ég hef svo gaman af því. 
»
25.11.2006 13:17:43 / vally
Komiði sæl og blessuð!
Nú styttist sko í jólin! Bara 29 dagar til jóla. Mig langar
helst að fara að skreyta allt hátt og lágt. Ég er sko löngu farin
að hlusta á jólalögin, þau klikka ekki. Ég bakaði smákökur um
daginn og þær klárðuðust á 2 dögum svo ég bakaði á fimmtudaginn
2falda uppskrift. Ég er svo dugleg heheh, Jón Bragi er samt
duglegastur að borða kökurnar. Það er nú bara í fínasta lagi,
þetta má ekki liggja undir skemmdum. Ég er búin að vera að dunda
mér að pakka inn jólagjöfunum sem við keyptum í Ameríku. Á bara
eftir að pakka inn örfáum gjöfum, svo á ég líka eftir að kaupa 4
gjafir. Ég er að reyna að vera tímanlega í þessu svo ég geti notið
þess að vera með krílinu mínu þegar það kemur.
Síðustu helgi var ég á spítalanum. Ég var búin að vera með svo
mikla verki og lítið búin að sofa alla vikuna, nánast ekkert. Ég
var með svaka verki á fimmtudeginum og alla nóttina. Ég sat bara
uppí rúmi bein í baki að reyna að sofna eitthvað. Heheh ferlega
bjartsýn að sofna í sitjandi stöðu, en það var skársta staðan, ég
fann svo til í öllum hinum stöðunum. Ég var stanslaust að fara
framúr, á klósettið og bara til að reyna að slaka á bumbunni. Það
endaði með því að ég fór eldsnemma á fætur. Ég lagaði neglurnar á
Rósu minni um 10 leytið og svo var ferðinni heitið í Rvk með Írisi
systir að kaupa afmælisgjöf handa mömmu og fleira. (Ég er svo
fyndin ég gat varla gengið og ég ætlaði í kringluna haha) Ég hennti
mér fyrst í sturtu og gerði mig sæta. En áður en við fórum þá
talaði ég við mömmu og hún sagði mér að fara uppá spítala. Ég var
nú ekki alveg að nenna því, því seinast þegar ég var að drepast þá
var ekkert að mér, fékk rosa flott svar frá Konna "suma verki fær
maður aldrei að vita hvað er" Ég var ekki alveg að nenna að heyra
það aftur. Steini og strákarnir voru að fara að vinna í húsinu og
ég ætlaði sko ekkert að vera að trufla það fyrir eitthvað smotterý.
(Sko hann hefur alltaf komið með mér í skoðanir nema þarna.) Svo ég
lét mömmu bara koma með mér. Við fórum uppá spítala um kl.14:30 Ég
var send í rit og það mældust stuttir samdrættir og ég var komin
með 1 í útvíkkun, þannig að þau vildu halda mér allavega fram á
kvöld. Um kvöldið var ég ennþá með verki og var ekkert búin að ná
að sofna svo ég fór aftur í rit og það mældust ennþá reglulegir
samdrættir en bara stuttir. Þá var ég komin með 2 í útvíkkun.
Þannig að ég fékk sprautu í lærið rétt fyrir miðnætti til stoppa
samdrættina. Ég náði að dotta í 2 tíma og vaknaði svo aftur með
verki kl 3, fékk þá aðra sprautu og náði að sofa til kl. 7. Ég var
ennþá með verki þá og fljótlega fékk ég töflu sem á að virka eins
nema bara lengur. Ég fékk að fara í leyfi heim á laugardeginum kl
15. Ég fór heim í sturtu og svo í afmælið hennar mömmu, það byrjaði
kl. 18 og vorum við þar til kl. 22. Ég var búin að vera með svo
mikla verki heima og í afmælinu svo við fórum beint uppá spítala.
Ég var látin gista þar aftur og það var dælt í mig töflum. Ég fór
heim í hádeginu á sunnudeginum með 2 töflur með mér. Eina sem ég
átti að taka kl 21 um kvöldið og eina þegar ég vaknaði svo átti ég
bara að taka því MJÖG rólega, helst bara liggja. (Ég átti svo að fá
reseft fyrir töflunum á mánudeginum.) Ég gerði það og svo fór ég í
mæðraskoðun á mánudeginum. Ljósan vildi að ég myndi hætta á þessum
töflum, hún skildi eiginlega ekki afhverju Konráð hefði sagt hinum
ljósunum að gefa mér þær. Því þær eru yfirleitt ekki gefnar ef
maður er gengin 34 vikur. Ég var gengin 34+ ...svo þegar ljósan sá
hvað töflurnar fóru illa í mig þá sagði hún að þetta væri
ógeðslegar töflur. Þessar töflur ráðast á hjartað í mér, en eru
skaðlausar fyrir barnið. Ég skalf svo hrikalega af þessum töflum að
það var alveg agalegt, mér fannst röddinn í mér titra líka. Svo
varð ég svo þurr af töflunum, var eins og harðfiskur í húðinni og
sífellt þyrst. ...Það er allavega allt í lagi með mig, kom ekkert
útúr þvagprufunni, né blóðprufunni og blóðþrýstingurinn í lagi.
Púlsinn var náttla aðeins hraðari útaf töflunum. Þannig að ljósan
sagði mér bara að gera það sem ég ætti eftir að gera, ég mundi
finna það sjálf hvað ég gæti. Hún sagði líka að krílið væri alveg
tilbúið og ef það vildi koma núna ætti bara að leyfa því að koma.
Ég var alveg verkjalaus á mánudeginum og er búin að vera það síðan,
svo þessar töflur hafa greinilega stoppað allt saman.
Þannig að ég og Steini skelltum bara í Rvk og keyptum bílstól og
dóterý. Fórum svo aftur á miðvikudaginn og keyptum kommóðu, rúm,
vagn, sæng og kodda, og eiginlega allt þetta helsta. Pabbi gaf
okkur vagninn og mamma gaf okkur sængina og koddan. Ég á svo
yndilega foreldra, það munaði sko helling að fá þetta gefins, þar
sem maður þarf að kaupa svo rosalega mikið. Takk elsku pabbi og
mamma! :* :*
Svo fórum við Elsa í Rvk í gær að versla aðeins meira. Keypti
dýnu í rúmið, hún var sko búin á miðvikudaginn. Svo keypti ég ýkt
sætan mjúkan heimferðaútigalla fyrir krílið okkar. Ég ætlaði líka
að reyna að kaupa afmælisgjöf og jólagjöf fyrir elskuna mína en ég
fann ekki það sem ég ætlaði að kaupa. Fann bara svona gjafir með
hehehe .....Ég var alveg gjörsamlega búin á því í fótunum í gær.
Ó mæ gad, mér sveið í fæturnar og þeir eru þvílíkt bólgnir. 
Þannig að í dag þá ætla ég bara að vera að dunda mér og þvo
krílaföt og tjilla. Ég ætla ekki alveg að keyra mér út. Ég held ég
þurfi ekki að vesenast mikið meira. Ég ætti að geta reddað mér í
Keflavík með restina sem okkur vantar. 
Ég var ekkert búin að vera að stressa mig á að gera allt
tilbúið, ég var samt búin að skipuleggja þetta allt saman. Hvað
vantaði og svo ætluðum við að byrja að kaupa í þessari viku. Heheh
..Ég vona samt að litla krílið okkar komi nú í byrjun-miðjan des.
Það yrði alveg týpíst að ég gengi framyfir eftir þetta. En ég ætla
ekki að gera það! 
Gleymdi að segja ykkur! Maður má ekki eiga í Keflavík nema maður
sé genginn 36 vikur. Ég segi að ég sé gengin 36 vikur í dag, en mér
var seinkað í 20 vikna sónarnum til 27. des svo að ég er ekki
gengin 36 vikur fyrr en 29. nóvember. ...Ég veit betur! hahaha
ég er svo fyndin! En það er líklega þess vegna sem Konráð
vildi að ég myndi fá þessar stopp-pillur, hann sagði að þessar 2
vikur væru mikilvægar. Svo að eftur mánaðarmót þá ætti allt að vera
klappað og klár og vonandi fáum við litla sólargeislann okkar
sem fyrst. Kannski fær Steini litla krílið í afmælisgjöf, ég gæti
allavega ekki fundið betri afmælisgjöf handa honum! 
En hafið það gott kæru vinir og endilega að kvitta fyrir
sig!
Knús í krús! :*
»
15.11.2006 20:09:14 / vally
Það er náttla bara kalt úti!!! BRrrrrr ekki
sniðugt. Þakka fyrir að ég hafi ekki brotið í mér stellið
(tennurnar) í nótt/morgun eða kl 05:10. Ég var á leiðinni í
vinnuna og ég var með alpahúfuna mína reimda fasta á hausnum, í
naflaúlpunni minni (mittisúlpa) og í leðurhönskum, ég meina ég
var rosa vel klædd. Svo þurfti ég að keyra af stað og gat varla
hreyft mig vegna kulda. Ég stífna svo upp í bakinu og öxlunum
þegar mér er kalt og svo fór kjálkinn á mér á fullt og ég glumdi
tönnunum saman á billjón. Ég réð ekkert við þetta, svo var ég að
reyna að hreyfa mig aðeins í takt við tónlistina til að reyna að
hlýja mér, það gekk svona líka vel eða þannig. Bíllinn hitnaði
ekki fyrr en ég var komin hjá gólfskálanum, þetta var eins og
versta hryllingsmynd. Svo þegar ég var komin á bílastæðið í
flugstöðinni þá tók löng ganga við. Þið vitið hvar regnboginn
er, listaverkið?! Ég þarf að leggja lengst þar og labba svo alla
leiðina inní stöð. Þetta var nógu löng leið í 10 stiga hita en
þetta var miklu lengri og erfiðari leið í -5 gráðu hita. Svo
voru allir að hlaupa framhjá mér, drífa sig inn en ég var bara
eins og skjaldbaka. Ég verð að viðurkenna það að þetta
fór mjög í taugarnar á mér. Arrgg!! Svo á leiðinni heim
úr vinnunni þá var sko ekkert búið að hlýna og ég reyndi að
drífa mig eins og ég gat og hlaut í staðinn þennan líka æðislega
hlaupasting í bumbuna. Ohh það var svo vont, ég þurfti að halda
við bumbuna svo ég gæti haldið áfram. Svo hitti ég Hjörleif vin
minn, hann var að vinna fyrir utan flugstöðina, þvílíkur
dugnaður. Ég hefði sko ekki getað unnið úti í þessum kulda, tek
að ofan fyrir öllum sem unnu úti í dag. En ég spjallaði
aðeins við hann en svo var ég bara að drífa mig svo ég yrði ekki
að einhverju skrauti þarna, ég var svo frosin. BRrrrrr....!
Heimsins besta mamma mín á afmæli í dag! Hún á
stór-afmæli, hún er orðin fertug. Til hamingju með daginn elsku
mamma mín. Það verður haldin svaka veisla á laugardaginn, hlakka
svaka til. Ég ætla að láta lagið eða textann fylgja sem ég
tileinkaði henni árið 2000.
Mamma, þú er mamma mín,
Mamma þú ert sæt og fín
Þú ert rúsínubollan mín
Þú er uppáhalds mamman mín! 
Við fórum í 34 vikna sónarinn á mánudaginn. Það
gekk mjög vel, krílið er komið í höfuðstöðu. Krílið okkar er í
minni kantinum, rétt undir 9 merkur eða um 2200gr. Þannig að það
verður í mesta lagi 15 merkur sem er bara flott stærð. 
Ég er orðin svo spennt að bíða eftir krílinu.
Hlakka svo til, við erum að fara að fara í verslunarleiðangur. Það
er víst nóg að kaupa. Þurfum til dæmis að kaupa bílstól, rúm,dýnu,
sæng og kodda, sængurver, kommóðu og svo náttla bleyjur og
allskonar smádóterý. Við verðum að hafa þetta allt tilbúið, við
vitum ekkert hvenær krílið ákveður að koma í heiminn. Ef það kemur
um hátíðarnar sem er líklegt þá eru náttla allar búðir lokaðar,
þannig að það er eins gott að gleyma engu nauðsynlegu. Ég hlakka
svo til að fara að þvo öll barnafötin í stóru ferðatöskunni. Ég
held að þetta verði aðeins raunverulegra þegar maður byrjar að
stússast í þessu öllu. Við erum byrjuð á foreldranámskeiðinu, við
erum búin að fara 1x saman og svo fór Steini í pabbatíma í gær.
Svo eru tveir tímar eftir, rosa spennó. Það er rosalega flott
aðstaðan en við meigum alveg eins búast við því að fá ekki aðal
aðstöðuna. Góður mánuður er víst 20 fæðingar en í desember eru
áætlaðar 30 fæðingar. Þannig að við ætlum ekkert að vera að
gera okkur of miklar vonir, þótt það væri gaman að prufa að fara í
baðið og svona.
Heilsan hjá mér er samt ekkert búin að vera best í
heimi undanfarið. Ég er hætt að getað sofið á nóttunni og hef í
rauninni ekkert sofið af ráði í nokkra daga. Ég þarf náttla að sofa
á annari hvorri hliðinni og núna er svo mikill þrýstingur niður og
verkir að ég get ekki komið mér vel fyrir. Svo klægjar mér svo
mikið, er að verða brjáluð. Held að það sé útaf bjúg, veit samt
ekki. Mér klægjar svo inní lófana og á fótunum og svo náttla á
bumbunni. Eftir að það kom frost þá byrjaði þetta svona svakalega.
Ég ber á mig olíu allavega 2x á dag og body butter á líkamann en
það er ekki nóg. Ég þyrfti helst að maka á mig á klst fresti. Svo
get ég ekki staðið lengi né setið lengi því ég verð svo fljótt
þreytt í fótunum og svo er rófubeinið eitthvað búið að vera að
stríða mér. Hahaha aðeins að kvarta smá hehehe 
Í sambandi við húsið þá eru strákarir að setja
ullina í loftið. Síðasta vika fór alveg í ruslið. En vonandi ná
þeir að gera helling í þessari viku, þeir verða að mest alla
helgina. Við fáum rafmagn á morgun svo þetta verður aðeins
þæginlegra. Þeir eru núna að nota einhverja bensínvél til að fá
rafmangn og hún eyðir svakalega í þessum kulda, alltaf
bensínlaus.
Ég ætla að láta þetta gott heita.
Kveðja Vallý jólabarn sem á von á jólabarni.
  
p.s ný skoðanakönnun, megið líka endilega skrifa í
komment hvað þið haldið! 
»
03.11.2006 13:43:11 / vally
Hæhæ!
Allt gott að frétta hér á bæ. Ég og Steini áttum 4 ára afmæli í
gær þann 2. nóvember. Við ákváðum að gera okkur glaðan dag
og fórum í Rvk út að borða. Við fórum á Caruso, mjög gott að borða
þar. Hildur og Bjarki komu með okkur og var bara rosa gaman hjá
okkur. Ég fékk mér lambafille og Steini nautalundir. Nammi namm
Við drukkum öll pepsí fyrir 1500kr!!! Pæliði í þessu haha
..9 litlar pepsí í gleri. Ekkert smá dýrt hehe.
Við erum rosalega hamingusöm og okkur líður æðislega vel saman.
Það verður náttla bara toppurinn á tilverunni þegar við fáum litla
sólargeislann okkar í hendurnar. Það eru bara 7 vikur í krílið.
Ótrúlega fljótt að líða.
Húsið gengur bara vel. Það er búið að leggja gólfhitann og
fleyta. Erum bara að bíða eftir að steypan þorni. Getum byrjað að
vinna í húsinu aftur eftir helgina. Svo er hitaveitan líka búin að
klára sitt, þannig að við fáum rafmagn eftir nokkra daga. Ohh
það er yndislegt að sjá hlutina gerast.
Jólin eru að koma! ...Ég hlakka svo til! 
»
14.10.2006 18:08:16 / vally
Hæhæ!
Allt gott að frétta af þessum bæ, það styttist í að
við fáum húsið afhennt. Þetta hefur tekið soldið langan tíma að
reysa húsið, en ég held að það sé vel gert. Smiðirnir eru að reysa
fyrsta húsið sitt svo þeir eru aðeins lengur en ráð voru gerð.
Það eru aðeins 10 vikur til jóla, það er svo stutt
þangað til krílið okkar á að koma í heiminn. Vá hvað ég er orðin
spennt!! Ég ætla að vona að húsið verði komið langt á leið jafnvel
tilbúið þegar þau gleðitíðindi eiga sér stað. Fólk hefur komist inn
á 5-6 vikum svo þetta á að vera hægt. Við getum bara ekki hafist
handa fyrr en við fáum húsið afhennt. Vonandi verður það fljótlega
í næstu viku. Ég geri samt alveg ráð fyrir því að það verði ekki
fyrr en í fyrsta lagi næstu helgi, miðað við hvernig allt hefur
þróast. En það verður léttir!!
Ástin mín er farinn að blogga. Þvílík harka í
honum, endilega kíkið á kroppinn og kvittið fyrir komuna.
http://blog.central.is/steinikroppur
Í dag var prinsinn hjá Halldóru (systir
Steina) og Hreggviðs skírður. Hann hlaut nafnið Andri Fannar.
Mér finnst það rosa flott nafn og óska honum og fjölskyldu til
hamingju.
Hann var skírður á Dalvík og langaði okkur rosalega
að fara en ég fékk ekki frí í vinnunni. Ég er ýkt fúl enda fór ég
að grenja!!! Ég bað um frí á þriðjudaginn og þá voru of margir
búnir að fá frí. Váá mér fannst þetta þvílík höfnun og fékk kökk í
hálsinn. Það er alltaf þvílíkt lítið að gera á laugardögum og
sunnudögum, allavega miðað við hina dagana. Svo er verið að flytja
búðina og allt í óreiðu. Ég gat ekki fengið neinn á hinni vaktinni
til að vinna fyrir mig því það var öllum frjálst að mæta alla
helgina á útkalli. Það er náttla feitur peningur sem maður fær
fyrir útkall. Það er greinilega ekki tekið mikið tillit til manns,
fólk fær frí trekk í trekk til að djamma en svo þegar ég bið um frí
til að fara út á land í skírn þá er sagt NEI. Ég er svo brjáluð,
því það vantaði alls ekkert fólk, það var allt morandi í fólki og
allir fyrir öllum. Ég var eiginlega bara fyrir, enda á ég ekkert að
vera að stússast í svona flutningum komin 7 mánuði á leið.
Svo er það saumó í kvöld, alltaf gaman að kjafta og
éta. 
Hef þetta gott í bili! Knús!
»
28.09.2006 20:28:20 / vally
Jæja loksins kem ég með fréttirnar sem allir eru búnir að bíða
eftir! Húsið okkar kom í gær og var byrjað að reisa það í dag.
Það eru semsagt allir útveggirnir reystir nú þegar og á að setja
þaksperrurnar á morgun. Ég get varla lýst gleði minni yfir þessum
tíðindum. Það var ekkert smá gaman að keyra upp eftir í dag og
loksins komið hús!!! Ég er ekki frá því að ég hafi keyrt framhjá
með sólheimaglottið hehehe. Ég þorði ekkert að fara útúr bílnum því
ég var ein og það voru nokkrir karlar að vinna, voða duglegir.
Núna er þessi leiðinlega bið búin og tekur nú við
skemmtileg bið. Eða núna fer maður að sjá allt gerast. Reyndar er
sodið knappur tími til jóla eða 12 vikur. Pælið í því!!! Steini
ætlar að koma okkur inn fyrir jól, ég náttla vona að það takist en
ég verð ekkert fúl ef það klikkar. Við komumst þá bara inn í janúar
eða eitthvað! Þetta ætti alveg að takast ef við verðum ekki meira
svikin, og við gerum ekki ráð fyrir fleirum svikum. 
Á morgun er ég komin 28 vikur á leið. Semsagt bara 12 vikur
eftir ef barnið kemur á réttum tíma. Mér finnst það soldið stutt
eftir. En okkur líður bara mjög vel og erum bara mjög hress. Ég er
að minnka við mig vinnuna og byrja í 50% á morgun. Mikið verður það
þæginlegt. Það er mjög erfitt að vinna í svona loftleysi og
mannfjölda. En barnið okkar er algjört krútt. Það er alltaf að
reyna að komast út úr maganum, spyrnir alveg rassinum í mig hehe,
ég er mjög oft með skakka bumbu og núna undanfarið mjög harða. Mér
finnst það bara fyndið, ég held að þetta verði húmoristi eins og
pabbi sinn. Mikið verður gaman að fá krílið í hendurnar, ég
er samt ekkert farin að bíða sko. Mér finnst mjög gaman að vera með
barn í maganum, bara yndisleg tilfinning, sérstaklega þegar maður
finnur og sér barnið hreyfa sig. Ég er búin að vera að
semja við krílið að koma um miðjan desember, svo er spurning hvort
það sé vilji barnsins, það ræður jú ferðinni.
En ég ætla að hafa þetta gott í bili. Takk fyrir að kommenta og
endilega haldið því áfram!!! 
Risa knús! 
»
24.09.2006 16:41:14 / vally
Jæja þá erum við komin heim og svona nokkurn veginn búin að koma
svefnminstrinu í rétt gang. Það er nefnilega 5 tíma mismunur.
En við komum semsagt út á þriðjudagskvöldi, vorum komin uppá
hótel rétt yfir kl.19 á amerískum tíma. Við vorum svo löt og þreytt
eftir flugið að við ákváðum bara að panta okkur pítsu og kók uppá
herbergi og horfa á Rockstar Supernova. Þetta var fínn þáttur og
við ánægð með okkar mann. Svo fórum við bara snemma að sofa.
Miðvikudagur: Váá ég veit ekki hvað við vöknuðum oft um nóttina.
Ég vaknaði allavega 5x, var orðinn voða pirruð. Við náttla sváfum
með lak og teppi, sem mér finnst ekkert sérlega þægilegt. Ég vef
nefnilega sænginni alltaf undir bumbuna en það var bara
viðbjóðslega óþæginlegt að troða teppinu undir bumbuna, þannig að
ég var með risa kodda. Það vandist svosem. ...Það endaði með því
að við drifum okkur á fætur fyrir klukkan 8 og skelltum okkur í
sturtu. Ég panntaði mér amerískar pönnukökur og vatn í morgunmat
uppá herbergi. Nammi namm! Svo tókum við taxa í Walmart og
gerðum þar alveg kosta kaup. Við versluðum alveg troðfulla körfu af
allskonar dóterýi, aðallega barnadóterýi samt. Þurftum að taka
okkur smá pásu um 11 leytið og settumst þá á Macdonalds og fengum
okkur í gogginn og hvíldum fæturnar. Heheh Svo þegar við vorum
búin að hlaða okkur þá héldum við áfram að versla. Það er svo margt
hægt að fá í þessari búð. Mér finnst hún algjör snilld, sumir eru
soldið snobbaðir á Walmart en ekki ég. Bíðiði bara þangað til ég
sýni ykkur allt það flotta sem við keyptum þar!!! Svo þegar við
vorum búin að versla og vorum að fara að borga þá fékk Steini smá í
magann. Hann hélt að við værum að eyða öllum peningunum okkar í
fyrstu búðinni okkar. Hehe svo þegar hann heyrði hvað þetta kostaði
þá var mínum manni sko létt. "Ég hélt að þetta myndi allavega
kosta helmingi meira" Borgar sig að versla í Walmart! hehe En
við vorum allavega með stóra ferðatösku með okkur og fylltum hana
og þurftum að halda á 4 pokum. Þannig að við ákváðum að fara uppá
hótel með allt dóterýið sem við keyptum og komum því fyrir í aðrar
töskur. Svo klukkutíma seinna fórum við með taxa í Babys ´r us og
þar var náttla verslað sittlítið af hverju. T.d. pela og
pelahitara, brjóstapumpu og svo náttla föt á okkar barn og önnur
börn. Svo fórum við í íþróttabúð sem var þarna í sömu lengjunni og
versluðum nokkrar jólagjafir. Þegar við vorum búin að versla þar,
þá biður Steini afgreiðslufólkið að hringja á taxa fyrir okkur. (Ég
beið sko úti með töskuna góðu.) Þá var bara hnulla símaskrá skellt
niður fyrir framan hann. Steini bara já takk fyrir kærlega!!!
Fallega!!! Ég bíð bara fyrir utan í steikjandi hita og þá kemur
kona til mín. Vantar ykkur far einhvert? Ég eins og auli vissi
ekkert hvað ég átti að segja því ég sá Steina ekki. Þá sagðist
konan ekkert vera vön því að bjóða ókunnugu fólki far. Sagðist vera
á leið heim úr vinnunni því hún væri með svo mikinn hausverk. Sagði
svo ég sé bara að þú ert ólétt og svo virtist maðurinn þinn vera
svo fínn þannig að ég ákvað bara að bjóðast til að skutla ykkur
einhvert. Já segi ég hissa og þá kemur Steini út úr búðinni
skrýtinn á svipinn. En okkur leyst svo vel á kelluna að við
létum hana skutla okkur í aðra íþróttabúð sem var ekkert svo
fjarri. Þetta var alveg yndælis kona á svaka fínum gull jeppling.
Við buðumst til að borga henni eitthvað fyrir farið en það vildi
kellan ekki. Svo fórum við í íþróttabúðina sem var svo ekkert spes
þannig að við hringdum í einn taxakall sem við vorum búin að fá
númerið hjá og hann kom og pikkaði okkur upp. Svo fórum við bara
uppá hótel og gengum frá dótinu. Ekki lélegt að fylla töskuna 2x á
einum degi. Svo fórum við niður á veitingarstaðinn Green Mill og
fengum okkur steik að borða. Fórum svo upp í herbergi og horfðum á
úrslitaþáttinn í Rockstar. Við vorum mjög glöð með úrslitin. Við
vildum sko ekki að Dilana myndi vinna, hún er alveg búin að skíta
uppá bak. Fæ hroll þegar ég sé hana.
Á fimmtudeginum þá var líka vaknað snemma og skellt sér í
sturtu. Við fórum niður á Green Mill og fengum okkur morgunmat. Svo
tókum við skutluna í Mall of America. Við vorum nú ekki lengi að
fylla töskuna þar heldur. Svo sáum við lítinn veitingarstað og
ákváðum að fá okkur eitthvað þar. Þetta var ítalskur
veitingarstaður heitir eitthvað Tucci Balucci. Svo var þetta bara
risastaður hehe en okkur var vísað til borðs við hliðina á
einhverju fólki. Það var svona meter á milli borðanna. Svo kemur
þjónninn og segir okkur matseðilinn, talaði reyndar allt alltof
hratt fyrir mig, ég skildi bara aðra hverja stetningu. En súpa
dagsins átti að vera alveg frábær og við pöntuðum okkur eina saman.
....JAKKK þetta var ógeðslegasta súpa sem ég hef á ævi minni
smakkað! Það var svo mikið jukk í skálinni að súpan var loðin! OHH
ég fæ alveg klígju! En svo fengum við okkur kjúkling í aðalrétt. Á
meðan við biðum eftir matnum þá heyri ég fólkið á næsta borði vera
tala um eitthvað asnalegt. Svo ég segi við Steina, hvað eru þau
eignlega að tala um? Þannig að við fórum að hlusta hehe Þá voru
þau semsagt bæði gift og áttu börn og voru að tala um hvað þau
gerðu. Konan talaði miklu meira og hærra heldur en maðurinn. Ég var
farin að velta því fyrir mér hvort hann væri einhver ráðgjafi eða
eitthvað. En svo kom annað á daginn! Konan segist elska manninn
sinn útaf lífinu en þau voru bara að nota hvort annað.
Maðurinn ynni voða mikið og myndi borga allt og hún þreif
húsið og eldaði og sæi um heimilið. Þau voru bara voða sátt við
þetta fyrirkomulag. Svo segir konan að maðurinn hennar gæti bara
ekki fullnægt sér, þyrfti að nota viagra og
eitthvað vesen. Hahhaha ég hélt við myndum skella uppúr! En
hún sagðist bara þurfa sitt, vildi samt ekkert vera nein
vændiskona. Ég og Steini vissum ekkert hvernig við áttum að vera og
vorum alltaf að passa okkur að þau sæu ekki að við værum að hlera.
Svo ákvað fólkið að fara og afgreiða málin! hahaha ég hef aldrei
verið vitni af jafn miklu rugli!!! Ó mæ gad!! ...En eftir
matinn þá héldum við áfram að versla og fórum svo uppá hótel. Svo
fórum við aftur í mollið og sóttum myndirnar okkar úr framköllun og
borðuðum á Ruby Thusday. Svo fórum við uppá hótel að glápa á
tv-ið.
Á föstudeginum fórum við líka í mollið og versluðum og
versluðum. Borðuðum svo á Green Minn og horfðum við á
sjónvarpið um kvöldið!
Á laugardeginum vesluðum við og enduðum kvöldið á Hooters! Þetta
voru nú bara voða venjulegar stelpur, sumar meira að segja tjobbí.
Við vorum þarna inni í svona klst. og á þeim tíma komu 3 sem áttu
afmæli. Já og þvílíku gelgjutaktar! Úfff þær löbbuðu allar í
röð og lömdu á tré-frispídisk og sungu einhvern asnalegan
afmælissöng. Aðalpían öskraði eitthvað (ramm fölsk) og þvílík
gleði!! En aðalpían sá einmitt um okkur. Ég ætlaði nú að fá mynd af
henni og Steina, en hann vildi það ekki. Hehe Hooters-píurnar
voru klæddar í hvítan stuttermabol merktur Hooters og svo í skær
appelsínugulum þröngum glans-stuttbuxum, nælonsokkabuxum, hvítum
háum sportsokkum sem voru krumpaðir niður og í hvítum strigaskóm.
Algjörar glæsipíur hahaha 
Á Sunnudeginum fórum við í Target til að kaupa okkur
ferðatöskur svo við kæmumst heim með allt dótið sem við keyptum.
Þar var náttla keypt mikið meira en töskur. Það er svo gaman í
þessum búðum. (Steini er ekki alveg sammála mér) hehe Svo fórum við
í mollið og versluðum meira.
Á mánudeginu fórum við svo í mollið í sjávardýragarðinn. Hann er
á neðstu hæðinni. Geðveikt flott, það er gler í loftinu og á
hliðunum og svo synda allskonar fiskar í kringum mann. Geðveikt að
sjá hákarlana, sköturnar og alla þessa skrýtnu fiska á öllum
hliðum. Svo skelltum við okkur í dýragarðinn. Hann var í hálftíma
frá mollinu og hann var nú ekkert spes. Eða jú hann var öllu heldur
spes. Það var svo langt á milli dýranna og stundum bara eitt dýr
til að sjá. Okkur fannst þetta hálf glatað. Svo var svona mini-lest
sem fer með fólk í ferð og við ætluðum í það en þá var fullt í það
og við nenntum ekki að bíða lengur og fórum uppá hótel. Svo fórum
við í mollið og þá var ég sko komin í verslunarstuð og keypti mér
loksins eitthvað á sjálfa mig. Ég var þvílíkt lukkuleg með mig.
Svo fórum við á Fridays og snæddum kvöldverð. Fórum svo uppá hótel
og horfðum á tv-ið
Á þriðjudeginum sváfum við til 11 og fórum niður í tölvuna og
svo fengum við okkur pítsu á Green Mill. Fórum svo í mollið í 2
tíma að slæpast! Þorðum ekki að versla meira! Ég fékk mér Cinnabon,
nammi namm! Svo fórum við fljótlega á flugvöllinn. Og þar gekk
allt eins og í sögu. Svo lenntum við á
miðvikudagsmorgninum.
Þetta var bara svaka fín ferð. Náðum að versla allt sem við
ætluðum okkur. Það er semsagt risastór taska með fötum og dóterýi
troðfull fyrir okkar barn, en hún er læst! Það fær enginn að
sjá fyrr en í desember. Svo versluðum við allar jólagjafirnar!!!
og svo eitthvað fyrir nýja húsið og fullt af sængurgjöfum og
afmælisgjöfum. 
Vááá ég held ég hafi aldrei bloggað svona mikið, vona að þið
nennið að lesa þetta allt saman. Endilega kvittið fyrir ykkur,
gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með! 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|